Algengar spurningar

Hér fyrir neðan eru svör við nokkrum algengum spurningum sem við fáum reglulega. En ekki hika við að að senda okkur línu eða hringja ef þú vilt vita meira eða fá ráðleggingar um vörur okkar og þjónustu.

Vörurnar okkar fást í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaupum, Nettó og Fríhöfninni.


Já, alla miðvikudaga í verslun okkar á Ægissíðu 121 er Helga Margrét Clarke, hjúkrunarfræðingur B.Sc. og lýðheilsufræðingur MPH, með heilsufarsmælingu og ráðgjöf.


Í heilsufarsmælingu er blóðþrýstingur og blóðsykur mældur og skráður niður. Einnig er hægt að fá blóðfitumælingu og reglulegt eftirlit ef óskað er. Auk þess eru aðrir heilsufarsþættir athugaðir og ræddir og ráðgjöf gefin í framhaldi.


Tími í heilsufarsmælingu og ráðgjöf hjá Helgu Margréti Clare, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingi, kostar 2.500 kr. Hinsvegar fylgir það frítt fyrir viðskiptavini sem versla fyrir 5.000 kr. eða meira.


Já. Sendu netpóst á hjukrun@celsus.is eða celsus@celsus.is.